Málstofan 23. nóv

Málstofan í tilefni Evrópsku starfsmenntavikunnar 2017 verður haldin í IÐUNNI fræðslusetri, vatnagörðum 20. Reykjavík þann 23. nóvember. KL: 15-17

Fræðsluerindi 10. október

Við minnum á: Fræðsluerindi kl. 9:15 þriðjudaginn 10. október. ATH á morgun! Helen Grey hjá Iðunni fræðslusetri fræðir okkur um VISKA. Kynningin mun fjalla um verkefnið VISKA (Visible Skills of Adults) sem er Erasmus+ (KA3) stefnumótunarverkefni fjögurra landa sem beinir sjónum að því forgangsatriði í stefnu Evrópusambandsins að efla starfshæfni innflytjenda með því að meta færni þeirra og auka þar

Ráðstefna Kvasir og Leiknar.

Ráðstefna Leiknar og Kvasis 25. apríl er haldin á Hótel Selfossi (á eftir aðalfundi) ,,Aðgengi fullorðinna að námi, hvati til náms og hindranir sem þarf að yfirstíga“ Dagskrá: 13:15 Setning – ávarp ráðstefnustjóra. – Eyjólfur Sturlaugsson, framkvæmdastjóri Fræðslunetsins – símenntun á Suðurlandi 13:25 Aðgengi fullorðinna að framhaldskólum – Meistararannsókn Elínar S. Welding Hákonardóttur. -Dr. Sif Einarsdóttir prófessor 13:50 Eitt skref

Aðalfundur Leiknar

Aðalfundur Leiknar verður haldinn þriðjudaginn 25 apríl kl. 12 – 13 hjá Fræðslunetinu, Tryggvagötu 13, Selfossi. Ráðstefna Kvasir og Leiknar hefst kl. 13:15 á Hótel Selfoss. Kl. 12.      Dagskrá aðalfundar: Skýrsla stjórnar Endurskoðaðir reikningar félagsins Umræður um skýrslu stjórnar og reikninga Fjárhags- og rekstraráætlun og ákvörðun um árgjöld Lagabreytingar Kosning formanns Kjör stjórnar (þegar við á) Kosning skoðunarmanna reikninga

Fjarfræðsluerindi framundan

Leikn heldur áfram að líta til norðurlandanna í leit að fyrirmyndarverkefnum sem geta mögulega nýst okkur til að breyta og bæta. Næsta fjarfræðsluerindi kemur því frá Danmörku og fjallar um hönnun námsumhverfis. Daninn veit hvað hann syngur þegar kemur að huggulegu umhverfi.  Smelltu hér til að tengjast fundunum.   Þriðjudagur 7. febrúar, kl. 9.00-9.45. „Hvernig styður skólabyggingin og námsumhverfið í Haderslev

Norræn fjarfræðsluerindi Leiknar

Næstu fjarfræðsluerindi Leiknar koma frá norrænum kollegum okkar. Annarsvegar er um að ræða kynningu á finnsku fjarnámskerfi og hinsvegar kynningu á dönskum arkitektúr sem styður við nýja hugmyndafræði náms.   Þriðjudagur 10. janúar, kl. 9.00-9.45. Finnskt fjarnámskerfi í Otava sem leggur áherslu á aðgengi, einfaldleika, traust og sjálfstæði í vinnubrögðum. Um er að ræða myndrænan og vel skipulagðan námsvef með

Fréttir frá fullorðinsfræðslu og næsta fjarfræðsluerindi – Efling menntunar í ferðaþjónustu og matvælaframleiðslu á Vesturlandi

Fjarfræðsluerindi Leiknar Hér má sjá næstu fjarfræðsluerindi Leiknar. Þau hefjast alltaf kl. 9.00 en gott er að skrá sig inn á fundarsvæðið nokkrum mínútum fyrr. Næsta erindi: Þriðjudaginn 6. desember: „Efling menntunar í ferðaþjónustu og matvælaframleiðslu á Vesturlandi“. Signý Óskarsdóttir, verkefnastjóri hjá Bifröst og SSV flytur erindið. Settu viðburðinn í dagatalið þitt: iCalendar  •  Google Calendar  •  Outlook    Fræðsla á

Fjarfræðsluerindi nóvembermánaðar

Þriðjudaginn 1. nóvember kl. 9 sendum við út fjarfræðsluerindi í 30 mínútur. Við fáum Guðmund Þór Reynisson, kerfisfræðing, til að fjalla um kosti upplýsingatækni til að halda utan um upplýsingar, án þess að prenta. Hann tekur m.a. dæmi um Evernote og fleiri öpp. Vonandi nýtist þessi örfræðsla okkur til að minnka sóun á pappír.  Smelltu hér til að tengjast fundinum. Næstu fjarfræðsluerindi Þriðjudagur 6.

Fjarfræðsluerindi á morgun – Listin að læra að lifa og læra saman

Fjarfræðsluerindi morgundagsins Í fyrramálið, þriðjudaginn 4. okt. kl. 9 hefjum við útsendingu á fyrstu fræðslu haustsins á vefnum. Anna Lára Steindal, heimspekingur og verkefnastjóri hjá Rauða Krossinum ætlar að fjalla um; „Listin að lifa og læra saman – Um traust og virðingu í samskiptum þvert á menningarheima“. Gott er að koma inn á námssvæðið aðeins fyrr og stilla sín tæki,

Fyrsta erindi vetrarins

Ágæta Leiknarfólk Við hjá Leikn erum búin að funda og setja okkur í stellingar fyrir nýtt starfsár. Að venju ætlum við að fræða og miðla upplýsingum um faglegar áherslur í fullorðinsfræðslu og styrkja þannig samstarfsvettvanginn og sameiginlegan hag. Á vefsíðu Leiknar má sjá allt sem á undan er gengið, skjöl, skrár og skýrslur eða rifja upp okkar sígildu snörpu fjarfræðsluerindi.