Næstu fjarfræðsluerindi Leiknar koma frá norrænum kollegum okkar. Annarsvegar er um að ræða kynningu á finnsku fjarnámskerfi og hinsvegar kynningu á dönskum arkitektúr sem styður við nýja hugmyndafræði náms.
Þriðjudagur 10. janúar, kl. 9.00-9.45.
Finnskt fjarnámskerfi í Otava sem leggur áherslu á aðgengi, einfaldleika, traust og sjálfstæði í vinnubrögðum. Um er að ræða myndrænan og vel skipulagðan námsvef með þróaða stuðningsþjónustu. Kynnir er Miia Siven, fjarkennslustjóri.
Settu viðburðinn í dagatalið þitt:
iCalendar • Google Calendar • Outlook • Outlook Online
Þriðjudagur 7. febrúar, kl. 9.00-9.45.
„Hvernig styður skólabyggingin og námsumhverfið í Haderslev í Danmörku við nám fullorðinna og nýja hugmyndafræði menntunar?“ Kynnir er Jesper Andreasen, ráðgjafa- og samskiptastjóri hjá VUC-syd (Voksenuddannelsescenter).
Settu viðburðinn í dagatalið þitt:
iCalendar • Google Calendar • Outlook • Outlook Online
Erindin hefjast að venju kl. 9.00 en gott er að skrá sig inn á fundarsvæðið nokkrum mínútum fyrr.