Guðrún Vala Elísdóttir og Sædís María Jónatansdóttir sóttu Nordic-Baltic fund í Kaupmannahöfn 17. og 18. september 2026.
Góður andi ríkti á árlegum samráðsfundi um fullorðinsfræðslu á Norðurlöndum og í Eystrasaltsríkjunum. Þar kom skýrt fram að þótt löndin vinni með ólíkum hætti og búi við mismunandi pólitískt starfsumhverfi, sameinast þau um sterk gildi og hafa sameiginlega sýn.

Til umræðu var meðal annars:
Á dagskránni var einnig gagnlegur fundur með fulltrúum Norrænu ráðherranefndarinnar um mikilvægi sjálfstæðis framhaldsfræðsluaðila. Fjallað var um gildi fullorðinsfræðslu sem á sér sterkar rætur í nærsamfélaginu en áhrif hennar ná langt út fyrir landamæri. Á tímum áskorana er ómetanlegt að miðla reynslu, læra hvert af öðru og efla samstarf.