Fræðsluerindi Leiknar hefjast að nýju og verkefni vorsins

Fræðsluerindi Leiknar á vorönn 2023
Bildung – Umbreytandi nám – Sjálfbærni

Leikn hefur nú starfi á nýju ári með áherslu á að miðla nýjungum til félagsmanna. Boðið verður upp á máðarlega erindi á vorönn til að efla víðsýni og veita innblástur inn í starf félagsfólks.  Nánari upplýsingar um fræðsluerindin verða send út í lok janúar.

Fyrstu tveir fyrirlesarar ársins verða þær Lene Rachel Andersen  og Laura Formenti.

  • Þann 9. febrúar, kl. 10-11, ætlar Lene Rachel Andersen að fjalla um „Bildung“. Lene Rachel Andersen er hagfræðingur, rithöfundur, framtíðarfræðingur og bildung ”aktívisti”. Hún hefur skrifað 20 bækur, m.a. bók um leyndarmálið að baki velgengni norræna módelsins í færðslumálum út frá hugtakinu Bildung. Þar kemur m.a. starf Grundtvig til sögunnar. Lene mun kynna fyrir okkur hugtakið og rýna í lýsandi þætti þess.
  • Þann 2. mars, kl 10 – 11, ætlar Laura Formenti að eiga við okkur spjall. Laura Formenti er sérfræðingur í námi fullorinna / símenntun og hefur hefur umsjón með vinnustofum um ”Pedagogy for Transformation in Work”. Laura ætlar að kynna fyrir okkur umbreytingu viðhorfa í námi fullorðinna og símenntun – og vill eiga samtal við okkur um það hvernig nám felur í sér umbreytingu.

Á döfinni

Fyrir utan fræðsluerindin þá hefur Leikn verið að vinna svolítið á bakvið tjöldin að ýmsum verkefnum. Má þar helst nefna:

  • Fylgjast með áherslum EAEA, m.a. með þátttöku á ársfundi samtakanna sem fór fram í Brussel í byrjun júní 2022. Á þessu ári verður hann í Zagreb.
  • Undirbúningur og þátttaka í hópi um endurskoðun laga um framhaldsfræðslu.
  • Þátttaka í bakhópi Fræðslumiðstöðvar Atvinnulífsins um Raddir fólks með erlendan bakgrunn og þátttaka í lokaráðstefnu verkefnisins 11. maí.