Á aðalfundi Leiknar, sem haldinn var 22. maí 2026, urðu breytingar á stjórn samtakanna. Nokkrir stjórnarmenn létu af störfum og nýir tóku sæti í stjórn. Fyrsti fundur nýrrar stjórnar var haldinn á Teams þann 15. júní þar sem farið var yfir verkaskiptingu og næstu verkefni samtakanna.
Í nýrri stjórn
Leiknar eru:
Guðrún Vala Elísdóttir, Símenntun á Vesturlandi – gjaldkeri
Helen Gray, Iðan fræðslusetur – ritari
Hildur Hrönn Oddsdóttir, Fræðslumiðstöð atvinnulífsins – meðstjórnandi
Sædís María Jónatansdóttir, Fræðslumiðstöð Vestfjarða – formaður
Eydís Katla Guðmundsdóttir, Fræðslunetið – Símenntun á Suðurlandi – meðstjórnandi
Oddbergur Eiríksson, Fjölmennt – varamaður
Kjartan Jónsson, Multikulti – varamaður
Stjórnin vill þakka fráfarandi stjórnarmönnum fyrir þeirra framlag til Leiknar og starf í þágu fullorðinsfræðslu á Íslandi. Um leið er nýjum stjórnarmönnum boðin hjartanlega velkomin til starfa.
Á fyrsta fundi stjórnar var einnig rætt um það sem fram undan er, meðal annars áframhaldandi miðlun upplýsinga til félagsmanna, samstarf innan fullorðinsfræðslunnar og þátttöku Leiknar í norrænu og evrópsku samhengi. Minnt var á NLL ráðstefnuna í haust og mikilvægi þess að halda áfram að efla sýnileika samtakanna og samtal innan greinarinnar.
Leikn sendir öllum félagsmönnum kærar sumarkveðjur og þakkar fyrir samstarfið á liðnum vetri. Við hlökkum til áframhaldandi samtals, samstarfs og sameiginlegrar vinnu að öflugri fullorðinsfræðslu á Íslandi.