Um Leikn
Hlutverk og markmið
Meginmarkmið Leiknar er að vera sameiginlegur vettvangur fræðsluaðila til hagsmunagæslu, samstarfs og þekkingarmiðlunar. Samtökin beita sér fyrir auknu vægi fullorðinsfræðslu í íslensku menntakerfi og stuðla að samstarfi milli aðildarfélaga.
Leikn hefur einnig átt frumkvæði að fjölmörgum fræðsluerindum og ráðstefnum þar sem sérfræðingar og starfsfólk í fræðslugeiranum koma saman til að ræða tímabær málefni.
Stofnun Leiknar
Leikn var stofnað þann 5. maí 2005 af hópi fræðsluaðila sem sáu þörf fyrir sameiginlegan vettvang. Frá upphafi hafa samtökin lagt áherslu á jafnt aðgengi að menntun óháð aldri og búsetu.
Samþykktir samtakanna skilgreina tilgang, skipulag og starfsreglur. Þær hafa verið endurskoðaðar reglulega til að endurspegla þróun fullorðinsfræðslu á Íslandi.